Iceland special - MT. ESJA IN WINTER - open editions of small sizes

  • Myndirnar í upprunalegu formi koma með hvítri rönd er hægt að setja í ramma án karton glugga.

  • Myndirnar fyrir neðan klipptar og prentaðar sem heilsíða. Þær eru sýndar í römmum frá IKEA sem koma með karton glugga og líka hægt að setja í án þess.
    * (rammar ekki seldir með).

  • Þær eru prentaðar á fallegan mattan “Fine Art” pappír sem dugir í yfir 100 ár.

  • Ég mun setja upphafstafina mína aftan á myndina, nema ef sérstaklega er beðið um að setja framan á hvítu röndina eða á myndina sjálfa.

Fyrir þá sem eru á höfuðborgarsvæðinu þá get ég skutlast með hana til þín, ef veður leyfir, eða hitt þig í Mjóddinni.

Enn annars er Sendingarkostnaður fyrir þá sem eru út á land og fer eftir kostnaði fyrir slíka þjónustu.

Hægt verður að borga með millifærslu inn á reikninginn minn í Landsbankanum.
(sendi upplýsingar eftir að pöntun er staðfest)


Um myndina - Mt. esja in winter

Myndin er tekin árið 2017 þegar ég var stödd heima til að hjálpa foreldrum mínum flytja frá þessu fallega útsýni í Grafarvoginum. Það hafði snjóað yfir nóttina stuttu eftir að ég kom og ég naut þess að vera þarna í náttúrunni með Esjuna í sínum fallegu vetrarklæðum beint fyrir framan mig. Hvílík sjón.. gerist ekki mikið fallegri enn þetta.
Ég eins og flestir Reykvíkingar halda mikið upp á Esjuna, þar sem hún blasir við yfir sundin, og ég sem barn og táningur var svo heppin að sjá hana beint út um gluggann heima í Breiðholtinu og hún hefur því sérstaka tilfinningu og minningar fyrir mig.

Ég á ekki margar myndir af Esjunni að vetri til og þykir mér því sérlega vænt um þessa. Myndinni hefur ekki verið breytt og auðvitað kom AI ekki til sögunnar. Hún er tekin á aðeins lengri tíma sem gefur þessa áferð sem er mýkri að sjá.

Myndin mun verða boðin til sölu síðar í “Limited Edition” stærðum og ef þú hefur áhuga á þeirri útgáfu þá vinsamlegast fylltu út formið fyrir neðan og sendu mér skilaboð.
Stærðirnar munu væntanlega vera ca 61x91, 81x122 og mögulega 102x152 cm.